tag:blogger.com,1999:blog-38330639225912924912024-03-08T00:24:21.754+01:00Í bóli bjarnarRagga og Olli á Svalbarða, Connecticut, Tromsö eða hvar sem helsthttp://www.blogger.com/profile/09806458440882858218noreply@blogger.comBlogger177125tag:blogger.com,1999:blog-3833063922591292491.post-3056850001888046152008-11-04T17:33:00.002+01:002008-11-04T17:36:46.921+01:00StrákurVið eignuðumst strák í morgun, kom í heiminn klukkan 7:04. 3580g, 51cm og við erum öll spræk.
Meira seinna.
Kv OlgeirRagga og Olli á Svalbarða, Connecticut, Tromsö eða hvar sem helsthttp://www.blogger.com/profile/09806458440882858218noreply@blogger.com3tag:blogger.com,1999:blog-3833063922591292491.post-70214189532646981062008-10-30T09:02:00.003+01:002008-10-30T09:06:20.109+01:00SnjórÞá er fyrsti snjórinn kominn. Það er ótrúlegt hvað allt er mikið bjartara fyrir vikið, jafnvel upplífgandi. Þetta eru nú svo sem engin ósköp, rétt smá þrifalag yfir allt. En það spáir snjókomu út vikuna þannig að það gæti verið fljótt að breytast þótt aðalsnjórinn komi ekki fyrr en eftir áramót.
37 vikur.. and counting!
kv
RGRagga og Olli á Svalbarða, Connecticut, Tromsö eða hvar sem helsthttp://www.blogger.com/profile/09806458440882858218noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-3833063922591292491.post-14178682012361793342008-10-26T14:58:00.002+01:002008-10-26T15:07:42.965+01:00VetrartímiÞá er búið að skipta yfir á vetratíma. Græddum við því aftur þennan klukkutíma sem tekinn var af okkur í vor. Meira hringlið með þetta alltaf hreint. Þrátt fyrir að dagatalið segi að hér sé kominn vetur, þá vottar ekkert mikið fyrir honum úti við. Hitastigið er búið að vera um 8 gráður og ekkert svo mikil rigning einu sinni. Það er reyndar farið að rökkva strax upp úr 3 á daginn (í gær var það reyndar um 4..hahah.. svindlarar!) og þess vegna mætti alveg koma smá snjór að lýsa upp umhverfið.
Annars ekkert títt. Nú er ein og hálf vika í vörnina og prófið, og ég er alveg fáránlega pollróleg yfir þessu. Skil ekkert í mér, ætli það sé ekki bara ástandið.
Ha det godt,
kv
RaggaRagga og Olli á Svalbarða, Connecticut, Tromsö eða hvar sem helsthttp://www.blogger.com/profile/09806458440882858218noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-3833063922591292491.post-63236513054169007832008-10-17T11:43:00.003+02:002008-10-17T11:52:31.503+02:00RitgerðarskilÉg er búin að skila ritgerðinni aaaaaaaaaaaaaaaAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA
Loksins :) það hlaut að koma að þessu á endanum. Og þá er það bara vörnin eftir 3 vikur. Vá hvað það verður skrýtið að setja endapunktinn við þessi 2 ár. Þau hafa verið sjúklega fljót að líða.
Kærar skilakveðjur til ykkar allra,
RaggaRagga og Olli á Svalbarða, Connecticut, Tromsö eða hvar sem helsthttp://www.blogger.com/profile/09806458440882858218noreply@blogger.com4tag:blogger.com,1999:blog-3833063922591292491.post-16846561721331485102008-10-07T13:08:00.004+02:002008-10-07T13:11:06.400+02:00Merkileg þessi umfjöllun á NRK1. Ótrúlegt viðtalið við Má Másson.. eða ótrúlegt, það er auðvitað engin leið að verja þessa vitleysu.
http://www1.nrk.no/nett-tv/indeks/146301Ragga og Olli á Svalbarða, Connecticut, Tromsö eða hvar sem helsthttp://www.blogger.com/profile/09806458440882858218noreply@blogger.com4tag:blogger.com,1999:blog-3833063922591292491.post-17212502034588302622008-10-06T21:42:00.002+02:002008-10-06T21:51:35.647+02:00ÚffÞað fer allur tími í að fylgjast með fréttum þessa dagana og því lítill tími til blogg skrifa. Ástandið ekki sem bjartast á Íslandi og ekki laust við að maður velti því aðeins fyrir sér hvort það sé sniðugt að koma heim um áramótin. Einfaldast og ódýrast fyrir okkur væri að Noregur mundi innlima Ísland, þá kæmumst við ,,fræðilega séð" heim án þess að hreyfa okkur spönn frá rassi. Annars held ég að maður láti ekki kreppu á sig fá og komi heim fullur bjartsýni um áramótin og fá sér vinnu, eða skapi sér vinnu ef ekki vill betur, við áþreifanlega hluti.
Kv. OlgeirRagga og Olli á Svalbarða, Connecticut, Tromsö eða hvar sem helsthttp://www.blogger.com/profile/09806458440882858218noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-3833063922591292491.post-16287930265421729152008-09-25T09:06:00.002+02:002008-09-25T09:14:55.786+02:00Í fyrrakvöld fórum við Olli í kvöldgöngu í skóginum eins og svo oft áður. Mætti okkur þá gríðarstór froskur, eða alveg 15 cm flykki. Ég hafði ekki hugmynd um að þeir lifðu svona norðarlega. Kannski var þetta ævintýraprins í álögum. Hver veit!?!
Í morgun var snjór niður í miðjar hlíðar allt í kringum okkur og frostskæni á pollum. Held meira að segja að það sé spáð snjókomu í næstu viku. Sennilega er haustið þá bara búið, stutt gaman það.
Kv,
RaggaRagga og Olli á Svalbarða, Connecticut, Tromsö eða hvar sem helsthttp://www.blogger.com/profile/09806458440882858218noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-3833063922591292491.post-40376377969057319572008-09-18T21:39:00.003+02:002008-09-18T21:52:42.412+02:00Það er ekki seinna vænna en að setja link hérna inná bumbumyndasíðuna okkar (svona þar sem þessi meðganga er nú alveg að klárast!). Þá sem langar að kíkja geta sent okkur póst til að fá aðgangsorðið.
Bumbumyndir
Annars er bara mest lítið að frétta. Haustið skartar sínu fegursta þessa dagana og nú getur maður farið að sjá norðurljósin aftur :)
Ha det godt,
Ragga og OlliRagga og Olli á Svalbarða, Connecticut, Tromsö eða hvar sem helsthttp://www.blogger.com/profile/09806458440882858218noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-3833063922591292491.post-63888532567261410612008-09-11T22:04:00.001+02:002008-09-11T22:06:23.730+02:00SveaÉg setti inn myndir frá Svea. Þær eru reyndar teknar á gömlu litlu vélina okkar þannig að þær eru frekar óskýrar, en það er nú auka atriði.
Kv. OlgeirRagga og Olli á Svalbarða, Connecticut, Tromsö eða hvar sem helsthttp://www.blogger.com/profile/09806458440882858218noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-3833063922591292491.post-33861470425153871892008-09-09T21:40:00.003+02:002008-09-10T08:47:33.277+02:00Til bakaJæja, ég komst heim frá Svalbarða á hentugum tíma. Allt útlit var fyrir að við þyrftum að eyða viku á barnum í Longyearbyen þar sem ekki fékkst flug fyrir okkur heim fyrr en 12. september. Við ákváðum samt að gera heiðarlega tilraun síðasta föstudag og mættum við innritunarborðið í Longyearbyen hálftíma fyrir opnun og skráðum okkur á biðlista. Heppnin var með okkur og fengum við að fljóta með til Tromsö. Það var ljúft að komast heim eftir tvær vikur og losna við kolarykið, frostlögsklístrið og díselolíu ilminn. Við vorum semsagt að byggja við forhitunarstöð fyrir kolanámuna í Svea, Svea nord. Settum upp 1,6MW ketil, hitaeliment og blásara sem blæs 70000m3/klst. Fyrir er varmi upp á 4,4MW og blásarar upp á 140000m3/klst. Um 50°C heitu lofti er svo blásið inn í námugöngin til að halda hita á mannskap og vélum. Þetta gekk fínt og virkar vonandi allt.
Veðrið á Svalbarða var frábært, um 4-6°C hiti á daginn og sól flesta dagana. Mjög fallegt og gaman að sjá þetta á þessum árstíma líka. Fjöllin í Svea hafa svo skemmtilegan lit í sólinni, gulgrárauðleitt, get ekki alveg lýst því en það er góð stemning sem myndast við þessa birtu.
Það var mjög mikið af ref á ferðinni í Svea núna og komu þeir reglulega að kíkja á mann. Sennilega hafa þeir komist upp á lag með að sníkja mat hjá einhverjum og athuga því allar manneskjur á svæðinu.
Svo var merkilegt hvað birtan minnkaði mikið á þessum tveimur vikum, frá því að vera bjart alla nóttina niður í myrkur 1-2 tíma, gerðist ótrúlega hratt.
Læt þetta nægja í bili og set svo inn nokkrar myndir á morgun.
Kv. OlgeirRagga og Olli á Svalbarða, Connecticut, Tromsö eða hvar sem helsthttp://www.blogger.com/profile/09806458440882858218noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-3833063922591292491.post-58135551060465411632008-09-03T19:15:00.002+02:002008-09-03T19:25:05.856+02:00HaustÞá eru haustrigningarnar byrjaðar og æ fleiri gul laufblöð eru sjánleg á hverjum degi. Ég tók eftir því seinni partinn að Tromsdalstindurinn var alhvítur niður í miðjar hlíðar. Það ætti nú ekki að öllu jöfnu að fara fram hjá manni á morgnana en sennilega er ég með hugann við eitthvað annað...
Olli er enn á Svalbarða og verður kannski fram yfir helgi. Hann á reyndar ekki pantað flug heim fyrr en 15. september (þökk sé hinum ofur skipulögðu og rökrétt þenkjandi yfirmönnum) en sennilega kemst hann samt heim fyrir þann tíma. Í versta falli yrði hann að húkka sér far með gámaflutningaskipi. Eða kannski ekki versta falli. Það er auðvitað mikið betra að ferðast með skipum heldur en flugvélum finnst mér.
Ha det godt,
RaggaRagga og Olli á Svalbarða, Connecticut, Tromsö eða hvar sem helsthttp://www.blogger.com/profile/09806458440882858218noreply@blogger.com2tag:blogger.com,1999:blog-3833063922591292491.post-38703767315644194502008-08-30T18:06:00.001+02:002008-08-30T18:06:05.447+02:00Copepod mambo
<object height='350' width='425'><param value='http://youtube.com/v/w-ShzzFvF78' name='movie'/><embed height='350' width='425' type='application/x-shockwave-flash' src='http://youtube.com/v/w-ShzzFvF78'/></object>
Lítill og sætur cyclopoid tekur snúning. Gjöriði svo vel..
Ragga og Olli á Svalbarða, Connecticut, Tromsö eða hvar sem helsthttp://www.blogger.com/profile/09806458440882858218noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-3833063922591292491.post-79524175198213621272008-08-21T22:01:00.002+02:002008-08-21T22:18:29.785+02:00SvalbarðiÉg skrepp upp á Svalbarða á mánudaginn kemur, þarf að tengja einn miðstöðvarofn í Svea. Ofninn er að vísu 1,4MW og við hann tengd vifta sem blæs 70000m3 á klukkustund. Þetta á að taka viku það sem ég á að gera, vona að það standist. Annars er ekki svo slæmt að tefjast ögn í Svea, fínt mötuneyti þar. Þetta er sem sagt viðbótar upphitun fyrir kolanámurnar í Svea sem við erum að græja.
Fyrst minnst er á Svalbarða þá var þessi lipri ísbjörn á ferðinni þar í gær.
Annars er allt gott að frétta héðan. Síðustu kvöld hafa farið töluvert í að horfa á ÓL. Norska sjónvarpið stendur sig ágætlega í að sýna frá skemmtilegu íþróttunum, það er skotfimi, hjólreiðum og fleiru.
Kv. OlgeirRagga og Olli á Svalbarða, Connecticut, Tromsö eða hvar sem helsthttp://www.blogger.com/profile/09806458440882858218noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-3833063922591292491.post-40957442703118414082008-08-16T05:07:00.011+02:002008-08-16T05:07:36.504+02:00Bee Gees - Nights on Broadway
<object height='350' width='425'><param value='http://youtube.com/v/wrUAMvd9cyQ' name='movie'/><embed height='350' width='425' type='application/x-shockwave-flash' src='http://youtube.com/v/wrUAMvd9cyQ'/></object>
Ragga og Olli á Svalbarða, Connecticut, Tromsö eða hvar sem helsthttp://www.blogger.com/profile/09806458440882858218noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-3833063922591292491.post-8588904988383083882008-08-16T05:07:00.009+02:002008-08-16T05:07:34.408+02:00I Want to Break Free
<object height='350' width='425'><param value='http://youtube.com/v/EVYgRPfC9nQ' name='movie'/><embed height='350' width='425' type='application/x-shockwave-flash' src='http://youtube.com/v/EVYgRPfC9nQ'/></object>
Ragga og Olli á Svalbarða, Connecticut, Tromsö eða hvar sem helsthttp://www.blogger.com/profile/09806458440882858218noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-3833063922591292491.post-61506979596488785202008-08-11T22:00:00.002+02:002008-08-11T22:05:32.718+02:00ÖrlítiðJæja, þá er best að sýna örlítinn vott af lífsmarki. Nú er sumarfríið búið og ég byrjaður að vinna og Ragga að skrifa. Við höfðum það fínt í sumarfríinu og fengum fínar heimsóknir frá foreldrum og tengdaforeldrum.
En nú fer lífið að komast í rútínu aftur og maður verður vonandi ögn duglegri að skrifa hér.
Við skelltum inn gommu af myndum ef einhver hefur áhuga.
Kv. OlgeirRagga og Olli á Svalbarða, Connecticut, Tromsö eða hvar sem helsthttp://www.blogger.com/profile/09806458440882858218noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-3833063922591292491.post-62668344931771532432008-07-15T16:15:00.002+02:002008-07-15T16:17:28.281+02:00SumarfríÞá er sumarið byrjað og jafnvel næstum búið. Eða svona hálfnað. Þar sem júlí er líka hálfnaður er ekki úr vegi að uppfæra vísdómsorð mánaðarins! Fyrstu gestir sumarsins eru komnir og farnir aftur og við bíðum spennt eftir næstu heimsókn sem fer nú alveg að bresta á.
Við bættum inn nokkrum myndum af ferðum okkar það sem af er sumri.
Sumarkveðja,
Ragga og Olli
P.s. Í tilefni þess að við vorum að þvælast í Svíþjóð þá fær eitt sænskt lag að fljóta með:
<object height='350' width='425'><param value='http://youtube.com/v/UVLZClkPqBk' name='movie'/> </object>
Ragga og Olli á Svalbarða, Connecticut, Tromsö eða hvar sem helsthttp://www.blogger.com/profile/09806458440882858218noreply@blogger.com4tag:blogger.com,1999:blog-3833063922591292491.post-74231276314896378342008-07-15T16:09:00.001+02:002008-07-15T16:09:59.097+02:00Kåta Maja - Sing Along
<object height='350' width='425'><param value='http://youtube.com/v/UVLZClkPqBk' name='movie'/><embed height='350' width='425' type='application/x-shockwave-flash' src='http://youtube.com/v/UVLZClkPqBk'/></object>
Ragga og Olli á Svalbarða, Connecticut, Tromsö eða hvar sem helsthttp://www.blogger.com/profile/09806458440882858218noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-3833063922591292491.post-16568166131262826172008-06-29T15:39:00.003+02:002008-06-29T22:06:31.078+02:00Júní og myndirJæja það er best að gefa örlítil lífsteikn frá sér. Hér í Tromsö gengur allt sinn vana gang. Ragga er í Umeå í Svíþjóð og ég er hér í Tromsö. Ég hef svosem mest eytt tímanum í að vinna enda eiga öll verk að klárast fyrir sumarfrí. Blokkin mín er á nokkuð góðu róli, en sama er ekki að segja um hótel og veitingastað sem fyrirtækið er með í að byggja þannig að ég og fleirri höfum verið sendir þangað flest kvöld og laugardaga.
Á morgun er síðasti vinnudagurinn minn fyrir sumarfrí. 1. júlí verður svo eytt í að þrífa íbúðina hátt og lágt. 2. júlí koma svo mamma og pabbi í heimsókn. 3. júlí keyrum við svo beinustu leið til Kiruna í Svíþjóð þar sem Ragga kemur á móti okkur með lest. Eyðum svolitlum tíma þar og keyrum svo eitthvað um Lappland inn í Finnland og svo heim til Tromsö.
Um miðjan júlí koma svo tengdó í heimsókn og þá verður að sjálfsögðu eitthvað rúntað líka, ef Volvóinn samþykkir það.
En jæja nú er kominn tími á kaffi og hjólatúr.
Kveðja Olgeir
P.s. Ég setti nokkrar júní myndir inn á myndasíðuna.Ragga og Olli á Svalbarða, Connecticut, Tromsö eða hvar sem helsthttp://www.blogger.com/profile/09806458440882858218noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-3833063922591292491.post-30707765606601398612008-06-14T20:38:00.003+02:002008-06-14T20:52:06.639+02:00Svithjod baby!Tha er eg komin til Svithjodar, nanar tiltekid Umeå. Eda reyndar er eg ekki i Umeå heldur adeins fyrir utan.. eins og venjulega. Her er sumar og sol og allt voda graent sem er skemmtileg tilbreyting. Ferdalagid hingad tok mig alveg heila 3 daga thar sem ferdir hittust ekkert serlega vel a. Olli keyrdi mig til Narvikur a sunnudaginn sidasta og thar var eg i eina nott. Thadan tok eg lest til Umeå. Su ferd tok um 10 tima. Eg gisti sidan eina nott i Umeå og siddegis daginn eftir hitti eg svo samnemendur mina og vorum vid öll sott a flugvöllinn i Umeå.
Lestarferdin var nokkud skemmtileg og var gaman ad sja landslagid breytast eftir thvi sem nedar dro og vid faerdumst naer Eystrasaltinu. Thar sem vid forum yfir landamaerin var snjor vidast hvar og einnig var um 10 cm snjor i Kiruna, sem er nyrsta borg Svithjodar. I Kiruna eru their ad faera midbaeinn eins og hann leggur sig, thar sem namurnar eru farnar ad na honum og hann stendur thvi a verdaetu landi.
Ha det godt!
kv
RaggaRagga og Olli á Svalbarða, Connecticut, Tromsö eða hvar sem helsthttp://www.blogger.com/profile/09806458440882858218noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-3833063922591292491.post-54042490457092213422008-05-26T16:46:00.002+02:002008-05-26T17:47:01.204+02:00Dýrast í EvrópuÉg las frétt um daginn þess efnis að við Tromsö búar borgum hæsta eldsneytis verð í Evrópu, sennilega svona nærri 210 íkr. Það er margt sem maður getur verið stoltur af sem Tromsö búi.
Annars er lítið að frétta hér, vorið kemur hægt og sígandi, með hita á milli 5 og 7 gráður, og örlítilli grænni slikju á trjánum.
Vor kvefið náði mér 17. maí og er búið að vera að grassera í mér í vikunni. Það náði svo að leggja mig um helgina. En ég hef snúið vörn í sókn þannig að þetta er allt að koma.
Í dag sá ég að ég hafði misst af fornbílasýningu í miðbænum á laugardag. Það hefði verið gaman að sjá enda mikið af þýskum stríðsárabílum til hér. Bílum sem voru seldir af úthlutunarnefnd fjandsamlegra eigna eftir seinna stríð. Hér í Tromsö, og sennilega í Noregi öllum var ansi mikið af bílum gert upp eftir stríð og notaðir í áratugi á eftir. Bílar sem voru nánast ónýtir 1945 gengu margir fram yfir 1960.
Læt þetta nægja í bili
Í dag er þjóðhátíðardagur Norðmanna. Að sjálfsögðu fórum við í bæinn og horfðum á skrúðgöngur með tilheyrandi lúðrablæstri. Virtum fyrir okkur allar mögulegar gerðir af þjóðbúningum sem fólk klæðist á 17. maí. Drukkum kakó á kaffihúsi, borðuðum pulsu og lentum óvart í messu (það var í það minnsta hlýtt í kirkjunni).
Veðrið var nú ekki sem best, slyddu él og hiti rétt yfir frostmarki enda vorum við gegnköld eftir 4 klst rölt um bæinn og gott að komast heim og fá sér heitt kaffi og köku.
Við settum helling af myndum frá deginum inn í albúmið okkar, aldrei þessu vant myndir af fólki en ekki fjöllum og bílum.
Kv. OlgeirRagga og Olli á Svalbarða, Connecticut, Tromsö eða hvar sem helsthttp://www.blogger.com/profile/09806458440882858218noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-3833063922591292491.post-27862602954051161812008-05-13T21:31:00.002+02:002008-05-13T22:07:49.472+02:00KeðjurEftir óhóflega snjókomu síðasta sólarhringinn neyddist ég til að setja keðjur undir Vollann til að komast í vinnuna í morgun. Það var nú eiginlega komið vor og jafnvel vottur af sumri, en það hvarf snögglega. Nú er reyndar komið glaða sólskin, sem er eins gott því ég var farinn að finna veðurfarinu hér í Tromsö allt til foráttu. Reyndar er ég sannfærður um að veturinn á Svalbarða var í raun léttari, í það minnsta mikið minni snjór, mikið þurrari snjór og mikið ódýrari bjór.
Ástæðan fyrir að ég leyfði ekki Volvónum að hvíla sig heima í dag, eins og undanfarna daga, var að ég þurfti að flytja verkfærin mín frá blokkinni, sem ég hef unnið í síðustu 8 mánuði , á nýtt byggingarsvæði. Ég fæ sem sagt ekki að klára blokk B-5 sem er orðin mér nokkuð kær enda hef ég lagt öll rör í hana. Ég er pínu svekktur, það hefði verið ánægulegt að fá að klára hana, enda ekki nema rúmur mánuður eftir af henni. Reyndar hafði ég hugsað mér að flytja verkfærin mín síðasta föstudag en þá neitaði Volvóinn að hjálpa mér, fór ekki að mala fyrir en ég hafði skipt út háspennukefli og kveikjuheila. En ástæðan fyrir að ég fæ ekki að klára blokk B-5 er að mér varð það á að sína framfarir og frumkvæði, það eitt og sér hefði verið í lagi en svo komst vinnuveitandi minn að því að ég væri farinn að tala norsku og þar með var ég gerður að BAS (byggansvarlig) á öðru verki sem fyrirtækið er með. Reyndar er þetta nokkuð sem ég kæri mig ekki um, líkar ekki að vera gerður ábyrgur fyrir hlutum sem ég hef ekki réttindi til, ég vil bara fá að skrúfa í friði.
17. maí er á næsta leiti og núna sér maður af og til skólalúðrasveitir ganga um bæinn og æfa sig, mis tærir tónarnir frá þeim eftir veturinn. En það verður eflaust gaman að fara í bæinn á laugardaginn og fylgjast með skrúðgöngunum, vonum bara að veðurguðirnir verði í góðu skapi.
Kv. OlgeirRagga og Olli á Svalbarða, Connecticut, Tromsö eða hvar sem helsthttp://www.blogger.com/profile/09806458440882858218noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-3833063922591292491.post-28230540663628383792008-05-12T00:09:00.005+02:002008-05-12T00:18:48.268+02:00HvítasunnudagurÍ dag fórum við í bíltúr á fastlandið og fannst okkur votta fyrir vori hér og þar. Við fundum meira að segja malarveg í vestfirskum gæðum með tilheyrandi drulluhvörfum og hvað eina. Við tókum nú ekki margar myndir en þessar tvær fá að fylgja með.
Þegar við komum svo aftur undir kvöld heim til Tromsö þá var samt greinilegt að vetur konungur er ekki tilbúinn til að yfirgefa okkur!
Kveðja,
Ragga og OlliRagga og Olli á Svalbarða, Connecticut, Tromsö eða hvar sem helsthttp://www.blogger.com/profile/09806458440882858218noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-3833063922591292491.post-18828890046669262092008-05-08T16:56:00.003+02:002008-05-08T17:03:09.981+02:00Ekki er seinna vænna en að skipta út vísdómsorðum mánaðarins og varð að þessu sinni fyrir valinu nokkuð skemmtileg hringhenda. En eins og alþjóð veit þá var ekkert kveðskapur undir hringhendu í augum Bjarts í Sumarhúsum. Ég verð nú að segja að mér féll heldur betur við norsku útgáfuna af honum, en sá hét Ísak og var hann ekki nærri jafn geðveikur og Bjartur okkar.
Ef einhver veit hver höfundurinn að vísunni er, þá má hinn sami gjarnan láta vita.
Kveðja,
RaggaRagga og Olli á Svalbarða, Connecticut, Tromsö eða hvar sem helsthttp://www.blogger.com/profile/09806458440882858218noreply@blogger.com2